Er nú komin aftur á bloggið búið að vera svo mikið að gera. Hef
varla komist til að lesa póstinn minn hvað þá að blogga. Hef alls
ekki staðið mig í að kommentera á ykkur stelpur. En takk fyrir
kommentin og ég er ekki drukknuð í sykrinum. Þykist full viss um
það að sykurinn er að kalla fram höfuðverkinn og þá er gerfisykur
þar með talinn. Hef bara verið ansi dugleg í danska kannski ekki
alltaf klárað allt sem ég átti að borða en svona næstum því.
Meira segja bauð ég börnunm upp á súkkulaðiköku í kvöld og
fannst bara ekkert tilrökumál að fá ekki neitt. Nú er saumó í
næstu viku og ég er búin að ákveða að fá mér af öllum sortum
og njóta þess í botn. Þangað til bara að vera rosa dugleg. Satt
best að segja hef ég ekki komist inn í laugar vegna anna og
þessvegna ekki vigtað mig.
Ætli ég nái takmarkinu um helgina 78 kg''???? það er síðasti
séns því takmarkið var 78 kg fyrir 1 mai. Vil ekki vera að vigta
mér hérna heima enda vigtin allt öðruvísi og frekar tækifærissinnuð
+/- 2kg.
Ætla að gefa ykkur uppskriftina að eplakökunni góðu sem er
ekkert nema hollusta og fellur að ég held alveg inn í danska
Hollustu eplakaka frá Hólmfríði
4 epli
2 egg
10 gr gerfisykur/ í stað 100 gr sykur
2 msk hveiti ( ég notaði spelt )
75 gr kókosmjöl
1 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
egg og sykur þeytt hveiti kókosmj. lyftid.og kanil bætt í.
Eplin brytjuð og sett í eldfast mót, deigið yfir. Bakað við 190
c í 30 mín .
Gott með sýrðum rjóma eða ís.
ps veit ekki hvort kókosmjöl er leyfilegt en kannski hægt þá að
sleppa einhverju á móti því
Skora á ykkur að prófa þessa. Ætla á bloggrúnt á eftir
kv bubble